Stuðningsfjölskylda
Stuðningsfjölskylda er aðili sem fenginn er á vegum barnaverndarþjónustu eða félagsþjónustu sveitarfélags (ef um fatlað barn er að ræða) fyrst og fremst til að taka á móti barni, eða í sumum tilvikum barni og foreldrum, á einkaheimili í því skyni meðal annars að tryggja öryggi barnsins, létta álagi af barni og fjölskyldu þess og leiðbeina foreldrum og styðja þá í uppeldishlutverkinu.
Sótt er um leyfið á grundvelli 8. og 9. gr. laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála nr. 88/2021, 85. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og 15. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Ferill umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda:
Hægt er að sækja um leyfið á Mínum síðum.
Nauðsynleg fylgigögn fyrir umsókn:
-
Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilismeðlima eldri en 15 ára
-
Tengill á eyðublað (prenta þarf út samþykkið og fylla inn í það)
-
-
Læknisvottorð – (sem staðfestir heilsufar viðkomandi og hvort umsækjandi er með langvinna sjúkdóma, líkamlega eða af geðrænum toga sem hafa áhrif á daglega virkni hans)
-
Hægt er að afla læknisvottorðs hjá heimilislækni
-
Nauðsynleg fylgigögn fyrir endurnýjun umsóknar:
-
Samþykki fyrir öflun sakavottorðs allra heimilismeðlima eldri en 15 ára
-
Tengill á eyðublað (prenta þarf út samþykkið og fylla inn í það)
-
-
Læknisvottorð – (sem staðfestir heilsufar viðkomandi og hvort umsækjandi er með langvinna sjúkdóma, líkamlega eða af geðrænum toga sem hafa áhrif á daglega virkni hans)
-
Hægt er að afla læknisvottorðs hjá heimilislækni
-
Til viðbótar við umsókn og framlögð gögn óskar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála eftir umsögn um umsækjanda og aðstæður hans til barnaverndarþjónustu eða félagsþjónustu í heimilisumdæmi umsækjanda. Þegar öll gögn og upplýsingar liggja fyrir getur stofnunin lagt endanlegt mat á umsóknina og tekið ákvörðun um hvort leyfi verði gefið út.
Tenglar á lög og reglugerðir vegna umsóknar um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda
Lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála nr. 88/2021
Reglugerð um úrræði á ábyrgð sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga nr. 652/2004
Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018